Um okkur
Fyrirtækið Ösp var stofnað af Alexöndru Ösp, sem hefur glímt við og lifað með sjálfofnæmissjúkdóminn Lupus SLE frá fimm ára aldri. Fyrirtækið byggir á hennar persónulegu reynslu, einlægni og þeirri trú að samkennd og tenging geti verið uppspretta styrks.
Reynsla Alexöndru af því að takast á við þennan illvíga sjúkdóm hefur mótað bæði sýn og stefnu Ösp. Þar er lögð áhersla á að skapa rými þar sem erfiðleikar mega sjást, tilfinningar fá að vera til staðar og fólk upplifi að það standi ekki eitt í sinni baráttu.
Ösp byggir á textum og efni sem endurspegla raunverulega líðan og lífsreynslu. Margir finna samhljóm í þessum orðum, því þrátt fyrir ólíkar aðstæður deilum við oft sömu tilfinningum, ótta, sorg, von, styrk, gleði, ást og þakklæti.
Tilgangur Ösp er að:
- efla tilfinningu um samhug og skilning
- styrkja fólk í erfiðum aðstæðum
- minna á innri styrk hvers og eins
- skapa rými fyrir von, þakklæti og ást
Ösp er vettvangur fyrir mannlega reynslu, þar sem enginn þarf að standa einn